Something like a phenomena

Just another WordPress.com weblog

“Imagination is everything. It is the preview of life’s coming attractions.” May 17, 2007

Filed under: kvikmyndir,vangaveltur — liljuros @ 8:17 pm

- Albert Einstein 1879-1955

The Secret er ný mynd sem að ég sá fyrir einni eða tveimur vikum hjá Eddu í Forma. Eftir því sem að ég best veit er myndin ekki sýnd í bíó, þó hefur hún verið sýnd 2 sinnum í Háskólabíói, í fullu húsi, með fyrirlestri eftir á. En hægt er að kaupa myndi á DVD, ekki á Íslandi þó, en á netinu. Ég held að þessi mynd hafi mikla möguleika að frétta aðeins á milli manna, og ég held að þetta verði næsti neðanjarðar slagarinn, allavega á meðal fólks sem hefur áhuga á persónulegri þróun.

The Secret er með afar svipaðan heimildarmyndastíl eins og myndin  What the Bleep Do We Know? aðeins án klisjulegs söguþráðs og teiknimynda. Mér líkar mjög vel við What the Bleep,en mér finnst The Secret betri. The Secret er um ‘intention-manifestation model’ og hvernig á að nota ‘the law of attraction’til að skapa allt sem að þú vilt fá í lífinu. Myndir bendir á að það að flestir einbeita hugsunum sínum á það sem að þeir vilja ekki eða endurtaka það sem að þeir hafa nú þegar. En til að ná árangri með ‘intention-manifestation’ er að einbeita hugsunum þínum að því sem að þú þráir. Jafnvel þó svo það virðist ekki eiga neina raunverulega stoð í lífi þínu eins og er.

Ég og Edda höfðum ótrúlega mikið gaman af myndinni og ég get með sanni sagt að ég hafi á vissan hátt lært mikið af þessari mynd, þó svo að ég hafi alltaf verið gert mér grein fyrir því hvað hugarfar skipti miklu máli. En ef þig langar að læra meira um ‘the law of attraction’ (endilega segið mér íslensku þýðinguna, að skrifa á íslensku er nógu erfitt, þar sem að ég hugsa á ensku) og hvernig á að laða að sér það sem maður vill fá út úr lífinu, þá er þessi mynd fyrir þig. Mjög auðveldlega peninganna virði. Ég elska að The Secret muni koma þessum hugmyndum áfram til margra manneskna, sem mun hvetja þær til að velja hugsanir þeirra meðvitað hvern einasta dag. Ímyndið ykkur heim heim þar sem að allir einbeittu sér að því að laða að sér það sem þeir vilja, í staðin fyrir það sem þeir vilja ekki (því að það er það sem við hugsum ó svo mikið um).

Lenti síðast bara í því í fyrradag, að ég sat í strætó á leið til Eikar að læra fyrir síðasta prófið okkar (ég er by the way, búin í prófum), að ég hugsaði stanslaust um hvað í ósköpunum í myndi gera ef að ég myndi hitta eina manneskju sem er ekki ofarlega á lista mínum. Vitir menn, ég labba í sakleysi mínu út úr strætó, rölti í ekki meira en 3 mínútur og viðkomandi manneskja labbar í átt að mér. Ég, hlustandi á iPod, þykist ekki taka eftir henni og vona að hún hafi ekki tekið eftir því, að ég tók eftir henni, og labba bara raklaust áfram eftir að hafa aukið hraðann aðeins.
Hver kannast ekki við þetta ? Þetta er svo ótrúlega típískt. Þegar að maður hugsar svona rætist það oftar en ekki.

Ég er búin að lesa mjög mikið um hvað fólki finnst um þessa mynd, og fann ég ótrúlega góðan punkt að mínu mati á veraldavefnum:

Perhaps the most crucial point of the film is that your emotions serve as your internal compass to let you know how well you’re applying the law of attraction.  This is straight out of Ask and It Is Given.  If you feel happy, joyful, passionate, or otherwise positive, you’re successfully thinking about what you want.  If you feel fearful, depressed, angry, or otherwise negative, you’re thinking mainly about what you don’t want, so you’re using the law of attraction destructively.  Hence, at any given time, you can simply check your emotional state to determine whether or not you’re in or out of alignment.  I know I’ve been very much in alignment lately because I’ve been feeling absolutely wonderful; consequently, I’ve been on a fantastic roll where I’m attracting more and more of what I want into my life.  It’s almost too easy.

Just watch the film god damn it!

Lilja.
X.

 

 
Follow

Get every new post delivered to your Inbox.