Mikið hrikalega er ég spennt yfir því að vera komin já, já, ennþá þó svo að ég sé komin heim.
Ég kíkti pínu út í gær, hitti hana Kitty mína. Það var ó svo gaman, að faðma hana og sjá. Að sjá alla bara, fólk sem að ég þekki ekki neitt en eru samt kunnuleg andlit. Þægileg nærvera. Líka það eitt að vita hvar ég er, hvert ég eigi að beygja til þess að komast heim og svo framvegis. Ekki að standa og rifja upp úr hvaða átt ég kom til þess að vita hvernig ég eigi að komast heim, hefði oft á tíðum þurft að hafa brauðmylsnur með mér úti í Bandaríkjunum.
Mikið og margt var keypt í Bandaríkjunum. Þar á meðal má nefna MacBook hvíta, sæta og fína, iPod Video 30 GB, 3 pör af skóm, rauða glansandi platform með viðarhæl, kóngabláa rússkins platform með glansandi hæl og svarta rússkins platform lág reimuð stígvél, if you catch my drift. 2 Kápur og 1 jakki, þar á meðal svört og hvít regnkápa sem er glansandi og æði sama hvað þið segið! Þrennar buxur, allar innvíðar en sam allar mismunandi. Helling af nærfötum úr Victorias Secret og body lotion og body spray. Origami sett! Nammi nammi og nammi, Mika n´Ike, marshmallow fluff og nördar. Mmmmm..! Glimmer sprey til að fiffa glimmer skóna mína sem eru að komast á síðasta aldur. Nokkrar gjafir. Heeeelling af kjólum, hné sokkum og dótarí og bling. Svona til að nefna eitthvað.
Baraa svona sitt lítið af hvoru.
Í kvöld er það hitting með henni Íris og Eyrúnu, ég ætla að fara ákveða mig í hverju ég ætla að vera. Ík!
Lilja.
X.