You’re English!
Algerlega þemalag síðasta laugardags. Það var svakalegt. Weird girls kvöld númer II, og hvernig það þriðja á eftir að verða get ég ekki einu sinni gert mér hugarlund um, því að elskurnar mínar, við vorum frá toppi til táar klæddar í spandex. Þá er ég að tala um heilan galla, aðeins með op fyrir andlitið. Svakaalegt, og jú, snilldin, rennilásinn í klofinu. HAH! Hann kom sér vel þegar að pissa þurfti á skrallinu, eins og flestir vita er oft barið á salernishurðir vegna óþolinmæðis og þær hefðu einfaldlega verið sparkaðar niður ef við þóttumst ætla að klæða okkur úr öllum gallanum til að pissa.
Fyrst var myndatkana fyrir SHUT Magazine, Hörður hinn mikli tók myndir, og efa ég ekki að þær verði neitt annað en stórfenglegar. Eftir það var haldið á leikvöll í grenndinni og tekið upp vídjó, svona eins og hefðin er. Heima hjá Kitty voru í boði steiktar kartöflur á la Kitty og heimatilbúnar pizzur á la Hulda plús helling af áfengi! Damn straight!
Á leiðinni niður í bæ átti það óhapp sér stað að Kitster steig ofan í opin ljóskastara sem ekki var gler yfir á Austurvelli, á endanum náði ég að tala hana til og sannfæra hana að hún þyrfti að fara upp á slysó sem og hún gerði. Fékk 6 spor. Sárið var ógeðslegt, oj. Eftir allt hú ha-ið splundruðumst við píurnar svo lítið en á endanum náðum við saman aftur á Kaffi Kózý því að þar höfðu verið lofaðir okkur fríir kokteilar. Naaammi.
Kvöldið endaði heldur illa hjá 2 fýsum í hópnum en ég var rænd í enda kvöldsins. Ekki af einhverjum klókum þjófi sem að ætlaði sko ærlega að hagnast, heldur einhverjum helberum og hreinræktuðum fávita, því að taskan mín varð eftir á Kaffibarnum (fann hana daginn eftir). Arnar húsvörður/dyravörður/fyndni gaurinn hafði fundið hana, og einnig dótið mitt úr henni um öll gólf. Þar á meðal 17.ooo kr sérsaumuðu Starkiller buxunum mínum (hafði verið í þeim yfir gallann á leið niður í bæ, en að sökum hita farið úr þeim, sett í poka og ofan í veski). SVEKK! Þær voru út ataðar í glerbrotum og bjór/djamm ógeði. Auk þess sem að tekið var úr töskunni var ilmvatn sem að er aðeins til á eBay, en þó eBay!. Lyfin mín, myndvélin hennar Kitty, snúra fyrir mp3 spilara, meikið mitt (í alvöru, hver stelur meiki, í alvöru!?) og annað óþarfa drasl.
Vá hvað karma mun taka þennan/þessa í rassgatið. Mhhhmmmm.
Myndir frá fyrri part kvöldsins hér.
E-r á myspace-inu mínu. (Eiginlega sömu)
2 af nokkrum á Reykjavíklooks.
Shizzle!
Lilja.
X.